Ikea úitieldhúsið sem slegist er um

Mbl.is/Ikea

Ef þessi veðurblíða ætlar að halda áfram að leika við okkur út sumarið, þá er ekki úr vegi að gera vel við sig á svölunum eða pallinum ef því er að skipta. Og hér er eldhúsaðstaða sem við rákumst á og teljum að séu ómissandi kaup fyrir komandi tíð.

Þetta fyrirferðalitla útieldhús býr yfir öllu því sem þarf til að græja matinn utandyra. Einingin er búin vaski og skáp sem léttir þér lífið við matseldina – er þú leggur óhreinar skálar og hnífa í vaskinn til að halda borðplássinu auðu. Hægt er að tengja vaskinn við garðslöngu til að fá rennandi vatn, en yfirborð vasksins er úr ryðfríu stáli sem ryðgar ekki og er auðvelt í þrifum. Skápurinn rúmar svo grilláhöldin og önnur ílát sem til þarf hverju sinni.

Eldhúsið er frá Ikea og er væntanlegt til landsins á næstu vikum.

Mbl.is/Ikea
Mbl.is/Ikea
Útieldhús er nánast ómissandi þetta sumarið.
Útieldhús er nánast ómissandi þetta sumarið. Mbl.is/Ikea
Mbl.is/Ikea
Mbl.is/Ikea
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert