Veitingarnar í veislunni slógu í gegn

Glæsilegur gnægtarbakki sló í gegn í útskriftarveislu.
Glæsilegur gnægtarbakki sló í gegn í útskriftarveislu. Mbl.is/Mynd aðsend

Þegar veitingar vekja athygli í veislum þá mætir matarvefurinn á svæðið til að taka þær út. Og það er nákvæmlega það sem við gerðum í þessu tilviki þegar við laumuðumst inn í útskriftarveislu í Gerðunum – en þar var nýstúdentinn í óða önn að undirbúa veisluhöld dagsins ásamt fjölskyldunni.

Útskriftir og annars konar stórviðburðir eru í algleymi þessa dagana og margir sem njóta þess að geta loksins fagnað með sínu nánasta fólki án allra takmarkanna. Í þessari veislu voru veisluborðin að svigna undan girnilegum veitingum sem flestar komu frá veisluþjónustunni Nomy. Eins  var metra langur gnægtarbakki sem sló heldur betur gegn hjá veislugestum – yfirfullur af gúrme ostum, ávöxtum, hvers kyns skinkum, hnetum, súkkulaði og öðrum sætindum. Utandyra mátti svo finna tjald með sannkallaðri garðpartístemningu – gashitara, bar og setustofu. Eftir því sem við komumst næst heppnaðist veislan vel og enginn gestur sem yfirgaf veisluna á fastandi maga en myndirnar ættu að tala sínu máli.

Allskyns krásir og girnilegt gotterí.
Allskyns krásir og girnilegt gotterí. Mbl.is/Mynd aðsend
Mbl.is/Mynd aðsend
Mbl.is/Mynd aðsend
Litlar konfektkökur frá Gulla Arnar.
Litlar konfektkökur frá Gulla Arnar. Mbl.is/Mynd aðsend
Glæsileg kaka frá Sætum syndum.
Glæsileg kaka frá Sætum syndum. Mbl.is/Mynd aðsend
Mbl.is/Mynd aðsend
Allur matur kom frá Nomy - glæsilega borið fram.
Allur matur kom frá Nomy - glæsilega borið fram. Mbl.is/Mynd aðsend
Mbl.is/Mynd aðsend
Sannkallað veislueldhús.
Sannkallað veislueldhús. Mbl.is/Mynd aðsend
Mbl.is/Mynd aðsend
mbl.is/Mynd aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert