Súkkulaðimús úr grískri jógúrt

Ljósmynd/Erna Sverrisdóttir

Ljúffengur eftirréttur í hollari kantinum sem tekur enga stund að útbúa.

Súkkulaðimús úr grískri jógúrt

4 skammtar

  • 100 g dökkt súkkulaði, saxað
  • 3 msk. hreinn appelsínusafi
  • 2 msk. hunang
  • 1 msk. vanilla
  • 350 g grísk jógúrt frá Gott í matinn
  • sjávarsalt á hnífsoddi

Aðferð:

  1. Setjið fyrstu fjögur hráefnin í pott og hitið á lægsta hita þar til súkkulaðið er bráðið.
  2. Látið kólna örlítið.
  3. Bætið grísku jógúrtinni saman við með töfrasprota eða í blandara. Setjið örlítið sjávarsalt út í.
  4. Hellið í glös berið strax fram eða geymið í kæli.
  5. Gott er að strá dökkum súkkulaðispæni yfir og skreyta með ferskum berjum.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert