Ný viskustykki frá Georg Jensen damask

Himneskir litir í mjúkum hör viskastykjkum frá Georg Jensen Damask.
Himneskir litir í mjúkum hör viskastykjkum frá Georg Jensen Damask. mbl.is/Georg Jensen Damask

Það er enginn sem skilar af sér jafn mjúkum og endingargóðum viskustykkjum og Georg Jensen damask. Og þeir voru að senda frá sér ný viskastykki sem koma í mjúkum draumkenndum litum.

Nýju viskastykkin kallast PLAIN, og eru úr 100% hör. Hér er einfaldleikinn að leiðarljósi með litlu útsaumuðu logói sem gefur viskastykkinu þennan auka díteil. Georg Jensen damask vill meina að hör sé hið fullomna efni fyrir viskustykki þar sem það dregur rakann vel til sín. Þar fyrir utan er hör líka endingargott og helst fallegt til margra ára.

Viskustykkin eru satínofin og gefa því slétta áferð og gljáa. Þau koma í fjórum litum sem draga innblástur sinn úr náttúrunni, en tveir litir eru ofnir saman við ljósan tón sem gefa þessa fíngerðu liti.

mbl.is/Georg Jensen Damask
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert