Granólaskálar sem toppa helgarmorgunverðinn

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Þessar sniðugu og fallegu granólaskálar eru fullkomnar fyrir helgarmorgunverðinn og brönsinn en þær eru allt í senn, fallegar, hollar og dásamlega góðar. Sniðugt er að útbúa skálarnar með smá fyrirvara og þá er bara skella smá grískri jógúrt með súkkulaðiflögum ofan í, skreyta og bera fram.

Það er engin önnur en Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir á Döðlum & smjöri sem á heiðurinn af þessari snilld.

Granólaskálar með grískri jógúrt
-Einföld uppskrift dugar í um 12 stk.

  • 4 dl hafrar
  • 1 dl kókosmjöl
  • ½ dl muldar heslihnetur
  • 1 dl kókosolía
  • ½ dl hlynsíróp
  • smá salt
  • 2 dósir af grískri jógúrt með súkkulaðispænum
  • hnetusmjör
  • bláber

Aðferð:

  1. Stillið ofninn á 150°C. Setjið öll þurrefnin saman í skál, bræðið kókosolíuna og blandið saman við ásamt hlynsírópinu og ekki gleyma smá salti.
  2. Takið muffinsform, t.d. sílikonform, sem rúmar 12 kökur. Setjið 1½- 2 msk. í hvert form og þrýstið niður og meðfram hliðum svo það myndist skál.
  3. Bakið í ofni í 15 mín og leyfið að kólna.
  4. Hrærið aðeins í grísku jógúrtinni og setjið eina vel kúfaða msk. ofan í hverja skál.
  5. Hellið smá hnetusmjöri yfir og skerið bláber til að skreyta.
  6. Geymið í kæli þar til skálarnar eru bornar fram.
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert