Geggjaðir smoothie íspinnar fyrir krakkana

Ljósmynd/Linda Ben

„Ég er alltaf að leita að góðum leiðum til að koma góðri næringu ofan í krakkana mína. Stundum eru þau bara ekki í stuði til að borða, eins og þegar þau eru eitthvað slöpp, þá er svo gott að geta gripið í góðar uppskriftir að mat sem ég veit að þau eiga eftir að borða,“ segir Linda Ben um þessa einföldu og algjörlega frábæru uppskrift sem hittir í mark. Hér er hún með smoothie sem búið er að frysta í íspinnabox. Við það verður ísinn mjúkur og afskaplega bragðgóður.

Smoothie-íspinnar fyrir krakkana

  • Banani
  • 2 dl frosin jarðarber
  • 1 dl frosin bláber
  • 1 dl frosið mangó
  • 2 dl jarðarberja AB-mjólk frá Örnu 

Aðferð:

  1. Blandið öllum innihaldsefnum saman í blandara.
  2. Hellið blöndunni í íspinnaform og frystið í 4 klst eða yfir nótt.
Ljósmynd/Linda Ben
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert