Stórkostlegur kjúklingaréttur Eyþórs

Ljósmynd/Eyþór Rúnarsson

Það er enginn annar en Eyþór Rúnarsson, meistarakokkur með meiru, sem á heiðurinn að þessum snilldarkjúklingarétti sem á rætur sínar að rekja til Mexíkó. 

Mexikóskur pottréttur með kjúklingi og maís-svartbaunasalsa

Pottréttur 

  • 1 rauðlaukur, skrældur og gróft skorinn

  • 1 gul paprika, kjarnhreinsuð og gróft skorin

  • 1 rauð paprika, kjarnhreinsuð og gróft skorin

  • 4 hvítlauksgeirar, skrældir og gróft skornir 

  • 300 g kartöflusmælki, skorið til helminga 

  • 700 g úrbeinuð kjúklingalæri 

  • Olía til steikingar 

  • 4 msk. fínmalað kummin 

  • 2 msk. laukduft 

  • 1 msk. sambal oelek chilimauk

  • 6 msk. Worcestershire-sósa

  • 2 dósir niðursoðnir tómatar 

  • 200 ml vatn 

  • 1 tsk. kjúklingkraftur 

  • Sjávarsalt 

  • Svartur pipar úr kvörn

Hellið olíu í pott og léttsteikið allt grænmetið. Takið grænmetið upp úr pottinum og brúnið kjúklinginn þar til hann er orðinn gullinbrúnn. Setjið grænmetið út í pottinn með kjúklingnum og bætið kryddunum, chilimaukinu og worcestershire sósunni út í ásamt tómötunum. Látið malla í pottinum í ca 35 mín. Smakkið til með sjávarsaltinu. Gott er að bera þennan rétt fram með sýrðum rjóma og nachos.


Maís- og svartbaunasalsa 

  • 1 280 g dós niðursoðinn maís 

  • ½ 400 g dós niðursoðnar svartar baunir 

  • ½ fínt skorinn chilipipar 

  • 2 msk. fínt skorinn kóriander 

  • 2 stönglar fínt skorinn vorlaukur 

  • ½ box kirsuberjatómatar, skornir í 4 bita

  • Sjávarsalt 

  • 3 msk. ólífuolía 

Blandið öllu saman og smakkið til með saltinu. 

Ljósmynd/Eyþór Rúnarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert