Dýrindis rib-eye með heimalöguðu kryddsmjöri

Hin fullkomna helgarsteik í boði Snorra.
Hin fullkomna helgarsteik í boði Snorra. mbl.is/Snorri Guðmundsson

Hér er helgarsteikin sem klikkar aldrei! Rib-eye með heimalöguðu kryddsmjöri og trufflu kartöflumús í boði Snorra Guðmunds.

Rib-eye með heimalöguðu kryddsmjöri (fyrir tvo)

  • Ribeye, 2x 250 g
  • Bökunarkartöflur forsoðnar, 2 stk sirka
  • Rjómaostur, 45 ml
  • Rjómi, 80 ml
  • Parmesanostur, 20 g
  • Truffluolía, 1-1,5 tsk / Elle Essen
  • Graslaukur, 4 g
  • Smjör, 60 ml / við stofuhita
  • Hvítlauksrif, 2 lítil eða 1 stórt
  • Steinselja, 2 msk söxuð
  • Sítróna, 1 stk

Aðferð:

  1. Pressið hvítlauksrif og rífið um 2 tsk. af sítrónuberki (varist að taka hvíta undirlagið með). Blandið saman hvítlauk, smjöri, saxaðri steinselju og sítrónuberki. Smakkið til með salti. Vefjið inn í matarfilmu eða smjörpappír og myndið lengju. Kælið.
  2. Takið kjötið úr kæli amk 1 klst fyrir eldun, en það mun hjálpa til við jafnari og betri eldun.
  3. Nuddið kjötið með olíu og saltið rausnarlega. Piprið eftir smekk.
  4. Skrælið bökunarkartöflurnar og setjið í lítinn pott með rjómaosti og rjóma. Stappið saman og hitið við miðlungshita þar til heitt í gegn. Rífið parmesanost saman við og blandið vandlega saman við ásamt truffluolíu (byrjið á helmning og smakkið ykkur svo til). Smakkið til með salti. Sneiðið graslauk rétt áður en maturinn er borinn fram og hrærið saman við kartöflumúsina.
  5. Hitið olíu á pönnu við meðalháan hita og steikið steikurnar í 3-4 mín á hvorri hlið eða þar til kjötið hefur náð 55 °C kjarnhita fyrir medium rare. Þá er gott að notast við kjöthitamæli. Gott er að bæta smjörklípu út á pönnuna og dreypa bráðnu smjörinu yfir kjötið á meðan það steikist síðustu 2 mín. Leyfið kjötinu að hvíla í um 5 mín áður en það er borið fram.
  6. Berið fram með góðu salati.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert