Sláandi fréttir fyrir aðdáendur Jennifer Aniston

Við sögðum frá því um daginn að TikTok-arar væru búnir að leysa ráðgátuna á bak við frægasta salat heims – hið svokallaða Aniston salat.

Salatið átti að hafa verið hádegisverður Aniston og félaga í tíu ár meðan Friends þættirnir voru teknir upp.

Aniston sagði frá því í viðtali á dögunum að uppskriftin eins og hún birtist á TikTok væri ekki allskostar rétt en engar kjúklingabaunir eru í salatinu að sögn Aniston. Ekki fylgdi sögunni hvort að afgangurinn af salatinu væri réttur en nú verða TikTokararnir að halda áfram að giska.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert