Kjúklingarétturinn sem spellpassar alltaf

Æðisgengilegt kjúklingasalat!
Æðisgengilegt kjúklingasalat! mbl.is/Snorri Guðmundsson

Hér er á ferðinni kjúklingasalat sem enginn má missa af - en það er holgerving sumarsins að mati Snorra Guðmunds sem á heiðurinn að uppskriftinni. Grillað, létt, ferskt og afskaplega bragðgott!

Kjúklingasalatið sem ærir sumarið

Fyrir tvo

  • 2 kjúklingabringur
  • 1 msk. Eðal kjúklingakrydd
  • 250 g jarðarber
  • 1 lárpera
  • 50 g pekanhnetur
  • 25 g graskersfræ
  • 1 rauðlaukur
  • 50 g hreinn fetaostur
  • 130 g blandað salat, t.d. spínat, blaðsalat og klettasalat
  • 1 límóna
  • 2 msk. hunang
  • 4 msk. ólífuolía
  • 8 g fersk basilíka

Aðferð:

  1. Setjið kjúklingabringur í skál með smá olíu og kryddblöndu. Blandið saman og látið marinerast í amk 30 mín.
  2. Rífið börkinn af einni límónu (varist að taka hvíta undirlagið með) og kreistið úr henni safann. Pískið hunangi og ólífuolíu saman við.
  3. Saxið basilíku mjög smátt og hrærið saman við dressinguna. Smakkið dressinguna til með hunangi, olíu, límónusafa og pínulitlu salti.
  4. Grillið kjúklingabringurnar í 12-15 mín eða þar til þær eru hvítar í gegn og fulleldaðar. Snúið nokkrum sinnum yfir eldunartímann. Sneiðið bringurnar rétt áður en maturinn er borinn fram.
  5. Sneiðið jarðarber, skerið lárperu í bita, sneiðið rauðlauk, skolið og rífið salat niður og myljið fetaost.
  6. Setjið jarðarber, lárperu, rauðlauk, graskersfræ og pekanhnetur í stóra skál og veltið upp úr rúmlega helmingnum af dressingunni. Skiptið á milli skála, toppið með grilluðum kjúklingabringum, meiri fetaosti, hnetum og dressing.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert