Naglalakk sem ilmar eins og ostur

Nýtt naglalakk sem ilmar af osti.
Nýtt naglalakk sem ilmar af osti. mbl.is/Velveeta X Nails.INC

Ostakennt naglalakk er ekki það sem við bjuggumst við að sjá þetta árið – eða hvað?

Snakkframleiðandinn Velveeta og naglalakkafyrirtækið Nails.INC í London, hafa sett á markað tvö ný naglalökk í sumarlegum litum. Annar er djúpgulur og ber nafnið „La Dolce Velveeta“, og hinn er skærrauður og heitir „Finger Food“. Lökkin eru fáanleg á síðu Nails.INC, eru bæði vegan og rúsínan í pylsuendanum er að þau lykta bæði eins og ostur – eða rétt eins og snakkið sjálft smakkast. Áhugasamir ostanaggar geta skoðað nánar HÉR.

mbl.is/Velveeta X Nails.INC
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert