Það er Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is sem á heiðurinn af þessari snilld. Svínalund er í miklu uppáhaldi hjá henni en hún segir svínið oft falla í skuggann af nauti eða lambi. Sé svínalundin hins vegar elduð rétt sé hún einstaklega mjúk og safarík og pöruð saman við góða grillolíu verði hún fullkomin.
Grilluð svínalund
Fyrir 4-6
- 1 kg svínalund
- 2 msk salt
- 1 flaska bjór
- steikarkrydd
- Caj P Smokey Hickory-grillolía
Aðferð:
- Sinahreinsið svínalundina og þerrið hana vel.
- Saltið og nuddið saltinu vel inn í vöðvann.
- Setjið í eldfast mót/annað ílát og hellið bjórnum yfir svo hann þeki lundirnar.
- Plastið vel og leyfið að marinerast yfir nótt helst (nokkrar klukkustundir duga samt til).
- Takið lundirnar úr bjórleginum og þerrið að nýju.
- Kryddið með góðu steikarkryddi og setjið á vel heitt grill.
- Penslið nokkrum sinnum með Caj P-grillolíu á meðan kjötið eldast. Takið af grillinu þegar kjarnhiti er 65° og leyfið kjötinu að standa í að minnsta kosti 15 mínútur áður en þið skerið það niður.
- Berið fram með bökuðum kartöflum, grænmetisspjótum (sjá uppskrift hér að neðan) og kaldri sósu (sjá uppskrift hér að neðan).
Grænmetisspjót
- ferskur maís (um 2 stk. skorin niður)
- 1 rauðlaukur
- 1 rauð paprika
- um 10 sveppir
- Caj P Smokey Hickory-grillolía
Aðferð:
- Skerið grænmetið niður og raðið á grillspjót. Penslið með Caj P og grillið á meðalháum hita í um 15 mínútur, snúið reglulega.
Köld sósa
- 150 g majónes
- 150 g sýrður rjómi
- 2 rifin hvítlauksrif
- 1 msk. Sriracha-sósa
- salt og pipar eftir smekk
- tabasco-sósa eftir smekk
Aðferð:
- Pískið allt saman og geymið í kæli fram að notkun.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir