Louis Vuitton x Alessi hnífapör væntanleg

Það er ekki oft sem fataframleiðandi og hönnunarfyrirtæki, taka höndum saman og kynna ný hnífapör – en það hafa Alessi og Louis Vuitton gert.

Á sýningu sem fram fór í Mílanó fyrr í mánuðinum, voru tískurisinn Louis Vuitton og hönnunarframleiðandinn Alessi með skothelda kynningu á nýjum hnífapörum. Stofnandi Off-White vörumerkisins og listrænn stjórnandi Alessi, Virgil Abloh, er sá sem hannaði hnífapörin – og þykja þau fremur óvenjuleg í útliti. Fyrir ári síðan fékk hann leiðsögn um vélsmiðju Alessi og heillaðist svo af formum tækjanna að hann fékk þá löngun að hanna hnífpör í þeim anda. Enda minna þau einna helst á skiptilykil! Hnífapörin samanstanda af gaffli, hnífi og skeið og eru væntanleg í sölu von bráðar.

Samstarfi Alessi og Louis Vuitton er stýrt af Virgil Abloh.
Samstarfi Alessi og Louis Vuitton er stýrt af Virgil Abloh. mbl.is/Alessi
mbl.is/Alessi
mbl.is/Alessi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert