Einfaldasta pítsa í heimi

Hrökkbrauðspítsa er fljótleg og bragðgóð.
Hrökkbrauðspítsa er fljótleg og bragðgóð. mbl.is/Helga Magga

Þegar ekkert er til í skápunum heima, þá er alltaf hægt að útbúa hrökkbrauðspítsu. Helga Magga á heiðurinn að þessari samsetningu og hefur gert í mörg ár fyrir sitt heimafólk. Hún mælir einnig með að nota þríhyrningslaga hrökkbrauð og fá þannig ekta pítsusneiðarútlit.

Hrökkbrauðspítsan slær í gegn

  • 4 hrökkbrauð
  • Pizzasósa (40 g)
  • Rifinn ostur (45 g)
  • Pepperoni 4 stk.
  • Pítsukrydd

Aðferð:

  1. Þú notar hrökkbrauðið eins og pítsabotn og setur á það álegg sem þér finnst gott.
  2. Bakar við 200 gráður í 7-10 mínútur eða þangað til osturinn er bráðinn. Tilvalið að auka próteinið með því að nota eldaðan kjúkling sem álegg. Botnarnir mýkjast við eldun en verða samt ennþá smá stökkir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert