Bakarameistari deilir leyndarmálum sínum

Það er vandasamt að baka hina fullkomnu köku.
Það er vandasamt að baka hina fullkomnu köku. mbl.is/

Það er bakarameistarinn Torben Bang hjá Cakenhagen sem deilir bestu ráðunum að vel lukkaðri köku. Það krefst æfingar að baka og skreyta eins og fagmaður – og að ná uppi rétta bragðinu. En samkvæmt Torben, þá eru þetta atriðin sem hafa skal í huga.

Hin fullkomna kaka verður að innihalda:

  • Sýru - Góð sætabrauðsterta verður að geyma „súrt“ hráefni. Til dæmis úr berjum eða súrum ávöxtum, sítrónu, ananas eða passion ávöxtum.
  • Súkkulaði – Sýrða efnið ætti helst að passa við súkkulaði. Sítróna og passion ávöxtur passa til dæmis vel með hvítu súkkulaði eða mjólkursúkkulaði.
  • Mulningur – Bættu einhverjum mulningi saman við, eins og stökkum hnetum eða súkkulaðihúð til að ná þessari fullkomnu áferð.
  • Rétt blanda – Hin fullkomna sætabrauðskaka verður að hafa rétt jafnvægi á milli einhvers sem er mjúkt og einhvers sem er hart. Kaka sem er nánast ekkert nema þeyttur rjómi verður fljótt ógirnileg á meðan önnur sem á vantar krem, verður fljótt þurr og óspennandi.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert