Ljúfasta máltíð Lindu Ben

Ljósmynd/Linda Ben

Þykkar lambakótilettur frá SS eru hér í aðalhlutverki með kartöflubátum, fylltum sveppum og kaldri sósu sem ætti engan að svíkja.

Grillaðar lambakótilettur með kaldri mangó- og hvítlaukssósu, kartöflubátum og fjölbreyttu meðlæti

  • Extra þykkar lambakótilettur í ítalskri marineringu frá SS
  • kartöflubátar með sítrónu og rósmaríni
  • köld mangó- og hvítlaukssósa
  • grillað eggaldin
  • grillaðir fylltir sveppir
  • bakaðar gulrætur

Aðferð:

  1. Takið lambakótiletturnar úr kæli og leyfið þeim að ná stofuhita (gott að miða við 2-3 klst. við stofuhita)
  2. Kveikið á grillinu og leyfið því að ná nokkuð góðum hita.
  3. Grillið á hvorri hlið í nokkrar mín. þar til eldað í gegn.
  4. Látið standa í 10 mín. við stofuhita áður en skorið er í það.

Kartöflubátar með sítrónu og rósmaríni

  • 1 kg kartöflur
  • 2 msk. hitaþolin olía
  • 1 tsk. salt
  • 2 tsk. oreganó
  • ferskt rósmarín
  • 1 sítróna

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir+yfir.
  2. Skerið kartöflurnar í báta og setjið í eldfast mót, hellið olíu yfir, stráið salti og óreganó yfir.
  3. Takið nokkra stöngla af rósmaríni og smellið í fatið, skerið sítrónuna í margar litlar sneiðar, smellið nokkrum í fatið.
  4. Bakið í 20-30 mín. eða þar til kartöflurnar eru mjúkar í gegn.
  5. Setjið ferskt rósmarín og sítrónubita aftur í fatið.

Köld mangó- og hvítlaukssósa

  • 2 dl majónes
  • 2 stk. hvítlauksgeirar
  • 2 msk. mangóedik (fæst t.d. frá Nicolas Vahé)
  • salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Setjið majónes í skál, rífið hvítlauksgeirana út í majónesið og hellið edikinu út á, kryddið með salti og pipar og hrærið saman.

Grillað eggaldin

  • eggaldin
  • hitaþolin olía
  • salt

Aðferð:

  1. Skerið eggaldin í sneiðar, penslið með olíu og kryddið með salti.
  2. Raðið á grillbakka og grillið í nokkrar mín. á hvorri hlið þar til mjúkt og gott.

Grillaðir fylltir sveppir

  • 250 g sveppir
  • 50 g kryddostur með papriku og beikoni

Aðferð:

  1. Takið stönglana úr sveppunum, skerið ostinn í bita þannig að þeir komist inn í sveppina.
  2. Raðið þeim á grillbakka og grillið þar til mjúkir.

Grillaðar gulrætur

  • gulrætur
  • 1-2 msk. balsamedik með hunangi
  • 1 tsk. púðursykur
  • ½ tsk. salt
  • 1 msk. sesamfræ

Aðferð:

  1. Snyrtið gulræturnar og skerið í helming, raðið í fat sem má fara á grill (má líka baka í ofni).
  2. Hellið balsamediki á gulræturnar og dreifið púðursykri og salti yfir.
  3. Grillið (eða bakið) þar til mjúkar, stráið þá sesamfræjum yfir.
Ljósmynd/Linda Ben
Ljósmynd/Linda Ben
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert