Sósan sem smellpassar með grillmatnum

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Grillaðar kjúklingabringur og góð sósa klikkar sjaldnast og hér fyrir neðan er dásamleg uppskrift að slíkri máltíð. Það er svo gaman að betrumbæta sósuduftið frá TORO því það er svo góður grunnur og virkilega gott að blanda saman tegundum eins og þessum hér. Það er engin önnur en Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn af þessari snilld sem allir ættu að prófa.

Góð sósa með grillmatnum
  • 1 pk. Toro-sveppasósa
  • 1 pk. Toro-kjúklingasósa
  • 200 g sveppir
  • 30 g smjör
  • 2 hvítlauksrif
  • 500 ml matreiðslurjómi
  • 200 ml vatn
  • 1 msk. nautakjötkraftur
  • salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

Skerið sveppina niður og steikið upp úr smjöri við meðalháan hita.

Rífið hvítlauksrifin niður þegar sveppirnir eru farnir að mýkjast og steikið aðeins áfram.

Hellið rjómanum yfir og pískið sósurnar saman við.

Kryddið til með krafti, salti og pipar eftir smekk.

Grillaðar kjúklingabringur

  • 4 kjúklingabringur
  • 3 msk. ólífuolía
  • 2 msk. Bezt á kjúklinginn-krydd

Aðferð:

Skerið bringurnar í tvennt (langsum).

Berjið aðeins niður þykkasta hlutann til að jafna þykktina á þeim betur.

Setjið í zip-lock-poka ásamt ólífuolíu og kryddi, leyfið að marinerast í að minnsta kosti klukkustund (yfir nótt líka í lagi).

Grillið á vel heitu grilli í um fjórar mínútur á hvorri hlið og leyfið síðan að standa í að minnsta kosti 10 mínútur áður en skorið er í þær.

Annað meðlætiGrillaðir kartöflubátar (keyptir tilbúnir eða kartöflur skornar í báta sem búið er að velta upp úr olíu og kryddi).

Salat að eigin vali, hér er blandað salat með jarðarberjum, fetaosti og brauðteningum.

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert