Bjórleginn kjúklingur með grilluðum ananas

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Það er vel kunn staðreynd að bjór er einstaklega skemmtilegt hráefni til að elda með og gildir þá engu hvort um er að ræða áfengan eða óáfengan bjór. Hér er Berglind Hreiðars á Gotteri.is með frekar frábæra uppskrift þar sem marineringin er fáránlega spennandi.

Bragðmikil og safarík uppskrift sem við hvetjum ykkur til að prófa.

Bjórleginn kjúklingur með grilluðum ananas

Fyrir um 4 manns

  • Um 700 g Rose Poultry úrbeinuð kjúklingalæri
  • 1 ferskur ananas
  • 1 flaska Stella Artois bjór
  • 80 g balsamic edik
  • 40 g ólífuolía
  • 30 g hlynsýróp
  • ½ laukur (saxaður smátt)
  • 2 msk. jalapeno úr krukku (saxað)
  • 2 rifin hvítlauksrif
  • ½ tsk. salt
  • Kjúklingakrydd
  • Kóríander til að strá yfir

Aðferð:

  1. Affrystið kjúklinginn og þerrið kjötið.
  2. Flysjið ananasinn og skerið í um 1 cm þykkar sneiðar.
  3. Blandið öllum hráefnum fyrir utan ananas og kjúkling saman í skál til að útbúa marineringuna.
  4. Geymið um 50 ml af henni til að pensla á kjötið síðar, setjið um 50 ml yfir ananassneiðarnar og hellið restinni yfir kjúklinginn, setjið hvorutveggja inn í ísskáp og geymið í um 3-4 klukkustundir.
  5. Grillið kjúklinginn síðan á vel heitu grilli í nokkrar mínútur á hvorri hlið, penslið auka marineringu á hann og kryddið með kjúklingakryddi.
  6. Leyfið kjúklingnum síðan að hvíla á meðan þið grillið ananasinn í nokkrar mínútur á hvorri hlið. Stráið kóríander síðan yfir og njótið.
  7. Hægt er að bera réttinn fram beint svona en einnig er gott að hafa kalda sósu og kartöfluklatta með.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert