Geggjað risotto með burrata osti

Rétturinn sem engan svíkur.
Rétturinn sem engan svíkur. Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

„Sumarlegt, létt og ljúffengt risotto með ferskum tómötum, kastaníusveppum, basilku og burrata osti“, það er svona sem Hildur Rut lýsir þessum geggjaða risotto rétti sem engan svíkur.

Geggjað risotto með burrata osti (fyrir 3-4)

  • 2 msk. smjör
  • 3-4 skarlottulaukar
  • 3 hvítlauksrif
  • 250 g kastaníusveppir
  • 200-300 g litlir tómatar (kokteiltómatar eða marzanatómatar)
  • 4 dl arborio hrísgrjón
  • 1 dl rósavín (má nota hvítvín)
  • 10-12 dl grænmetissoð (vatn og grænmetis- eða kjúklingakraftur)
  • 2 dl parmesan ostur (og meira til að bera fram með)
  • Salt og pipar
  • Fersk basilika
  • Fersk steinselja
  • 2 burrata ostar

Aðferð:

  1. Byrjið að hita vatn og grænmetis eða kjúklingakraft í stórum potti.
  2. Smátt skerið lauk, sveppi og tómata.
  3. Bræðið smjör á pönnu og steikið laukinn þar til hann verður mjúkur.
  4. Bætið hvítlauk og sveppum saman við.
  5. Því næst bætið tómötunum út í og steikið í nokkrar mínútur.
  6. Hellið risotto grjónum útí og hrærið vel saman.
  7. Þegar grjónin eru orðin smá glær á endunum hellið þá rósavíni út í og hrærið saman við.
  8. Hellið því næst 1-2 dl af grænmetissoði út í og hrærið. Þegar grjónin eru búin að drekka í sig soðið þá hellið þið aftur 1-2 dl af soði út í og hrærið. Gerið þetta koll af kolli þangað til að soðið er búið og grjónin tilbúin. Þau eiga að vera mjúk og rjómakennd. Ég mæli með því að smakka og ef þau eru ennþá seig bætið þá meira vatni við. Saltið og piprið eftir smekk.
  9. Bætið parmesan osti, smátt saxaðri basiliku og steinselju útí í lokin og hrærið saman.
  10. Toppið með burrata osti og ferskri basiliku. Gott að bera fram með ísköldu rósavíni og hvítlauksbrauði.
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert