Eldhúsið sem minnir á marmaraköku

Marmaradraumur svo ekki sé minna sagt.
Marmaradraumur svo ekki sé minna sagt. Mbl.is/Taran Wilkhu

Telst það jákvætt að líkja eldhúsinnréttingu við klassíska marmaraköku? Ef ekki, þá biðjumst við afsökunar – en við elskum hvorutveggja, þá góða marmaraköku sem og fallegan marmara eins og sjá má í þessu eldhúsi hér.  

Eldhúsið er byggt upp með hvítum Carrara marmara þar sem línurnar í steininum eru eins lifandi og hægt er að vera. Það mætti segja að við séum að horfa á einskonar málverk á þessum myndum sem fylgja hér með fyrir neðan, því augað heillast hvert sem á er litið. Brasseruð blöndunartæki og leðurklæddir stólar setja svo punktinn yfir i-ið í þessu glæsilega eldhúsrými.

Mbl.is/Taran Wilkhu
Mbl.is/Taran Wilkhu
Mbl.is/Taran Wilkhu
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert