Einstök lausn fyrir lítil eldhús

Lítil eldhús geta rúmað meira en margan grunar. Svo lengi …
Lítil eldhús geta rúmað meira en margan grunar. Svo lengi sem skipulagið sé í lagi. Mbl.is/Falper

Lítið pláss þýðir ekki endilega að slá þurfi af gæðunum eða þægindunum og þegar plássið er er skornum skammti skiptir góð og hugvitssöm hönnun öllu máli.

Falper Small Living Kitchens hannar lausnir fyrir minni eldhús þar sem lofthæðin er nýtt til hins ítrasta. Hér er um að ræða háar einingar með útdraganlegum hurðum sem geyma til dæmis ísskáp, búr og hillur. Hægt er að aðlaga einingarnar að þörfum viðskiptavinarins og hægt er að velja um að fá einingarnar spónlagðar eða með möttu lakki. Eins er innbyggð LED lýsing til að huga að öllum þáttum sem einkenna gott eldhús og vinnuaðstöðu. Þeir sem vilja kynna sér málið nánar, geta skoðað heimasíðu Falper HÉR

Mbl.is/Falper
Mbl.is/Falper
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert