Kóresk BBQ uppskrift

Kóresk matargerð nýtur mikilla vinsælda enda þar að finna sérlega skemmtilegar bragðsamsetningar sem hitta í mark. Hér gefur að líta uppskrift að svokallaðri skirt steik eða flank steik sem er þunnur vöðvi sem hefur ekki náð upp á pallborðið hérlendis. Það skiptir þó ekki höfuðmáli hér heldur hvetjum við ykkur til að prófa marineringuna á góðan bita af nautakjöti sem þið grillið eftir kúnstarinnar reglum og þunnskerið svo. 

Kóresk BBQ uppskrift

Marinering

  • 2 msk. ólífuolía
  • 2 msk. soyasósa
  • 1 hvítlauksgeiri, kraminn
  • ½ rauður chili, saxaður
  • 1 tsk. rifinn sítrónubörkur
  • 2 msk. sítrónusafi
  • 300 g skirt steik
  • 1 msk. olía
  • ¼ grænkál, rifið
  • 4 stórir sveppir
  • Salt og pipar eftir smekk
Dressing
  • 1 msk. llía
  • 1 tsk. sesamolía
  • 1 tsk. sítrónusafi
  • 1 tsk. púðursykur
  • 1 tsk. soya sósa

Marinering

Blandið saman olíu, soyasósu, hvítlauk, chili, sítrónuberki og safa. Leggið steikina í marineringuna og látið helst liggja yfir nótt. Áður en steikin fer á grillið skal þerra steikina með eldhúspappír en penslið með afgangnum af marineringunni meðan kjötið grillast. 

Grillið í um það bil þrjár mínútur á hvorri hlið (eða eftir því hversu þykkan bita þið eruð með.

Til að gera dressinguna er best að setja öll hráefnin í krukku og hrista vel. 

Grillið kálið og sveppina með og penslið með marineringunni. 

Berið fram með dressingunni. 

Snjallt er að bera kjötið fram á heitum steini eða disk sem viðheldur hitanum á kjötinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert