Boost eins og það gerist best

Við elskum gott „búst“ en það eru skyrdrykkir með allskonar góðgæti sem gera drykkinn enn næringarmeiri, bragðbetri og seðjandi.

Hér er sáraeinföld uppskrift sem smakkast unaðslega og við mælum heilshugar með enda er hún sneisafull af alls kyns góðgæti.

Boost eins og þú færð á næsta skyr-bar
  • Ísey skyr tiramisú 170gr
  • Hálfur bolli mangó
  • Hálfur frosinn banani
  • 1 msk. chia fræ
  • 1 msk. hampfræ
  • 2 stk. döðlur
  • 1 msk. möndlu- eða hnetusmjör
  • 3 stk. ísmolar

Hræra vel í blandara og njóta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert