Nestisboxin sem slegist er um

Þið sem eigið krakka á samfélagsmiðlaaldri vitið að Hydro Flask er það allra svalasta sem hægt er að eignast og nú er svo komið að Hydro Flast nestisboxin eru bókstaflega að setja allt á hliðina.

Við erum að tala um fínasta box með tvöfaldri einangrun og allt hvað eina. Maturinn ætti að haldast ferskur allan daginn og við viðurkennum fúslega að boxið eða taskan lítur vel út.

Það var svo engin önnur en Jennifer Garner sem birti þetta myndband á dögunum en þar má sjá hana setja saman nesti í slíka flösku og ljóst er að Garner leggur mikinn metnað í verkið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert