Útbjuggu sérstakan kampavínssíma í tilefni afmælisins

Þú tekur upp tólið og kampavín mun berast innan örfárra …
Þú tekur upp tólið og kampavín mun berast innan örfárra mínútna. Hljómar sem frábært plan! mbl.is/The Harper

Hvernig hljómar að geta tekið upp tólið og fengið kampavín hvenær sem þig þyrstir í? Í okkar eyrum er fátt sem myndi stoppa okkur í þeim efnum.

The Kimpton Harper hótelið í Texas, fagnaði fyrsta afmælinu sínu með nóg af búbblum. Í júlí  tilkynnti hótelið um samstarf við vínframleiðandann Veuve Clicquot og hefur verið settur sérlegur kampavínssími inn á svítur hótelsins þar sem gestir þurfa einungis að taka upp tólið til að panta sér kampavín sem er að sjálfsögðu við kjörhitastig.

Kampavínið kemur í sérmerktum glösum sem gestir mega taka með sér heim.

Að sögn talsmanna hafa viðtökurnar ekki látið á sér standa og því hefur verið ákveðið að síminn sé kominn til að vera.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert