Besta þrifblandan á eldhússkápana

Ljósmynd/Kvik

Það gefur augaleið að fita og óhreinindi setjast á eldhússkápana okkar – þá algjörlega óumbeðið. En slíkt er erfitt að komast hjá í eldhússum þar sem dagleg eldamennska fer fram. Hér er skotheld aðferð sem við rákumst á á TikTok og mun fjarlægja alla fitu og skilja skápaframhliðarnar eftir glampandi hreinar - eða eins og nýjar.

Besta þrifblandan á eldhússkápana

  • ¼ bolli matarsódi
  • 1 msk. sítrónusafi
  • 1 bolli vatn
  1. Blandið öllu saman.
  2. Bleytið klút upp úr blöndunni og þrífið skápaframhliðarnar.
  3. Látið standa í fimm mínútur.
  4. Bleytið hreinan klút með heitu vatni og þurrkið yfir skápana sem verða skínandi hreinir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert