Grillað ribeye með frönskum kartöflum og hvítlaukssmjöri

Ljósmyndari/Snorri Guðmundsson
Einfalt en ótrúlega ljúffengt grillað ribeye með krydduðu frönskum kartöflum og heimagerðu hvítlaukssmjöri. Skotheld uppskrift þegar gera á vel við sig og sína með góðri steik. Það er Snorri Guðmundsson, ljósmyndari og matarbloggari, sem á heiðurinn að þessari uppskrift.
Einfalt en ótrúlega ljúffengt grillað ribeye með krydduðu frönskum kartöflum og heimagerðu hvítlaukssmjöri
  • 2 x 250 g Ribeye steikur
  • 400 g franskar kartöflur (Snorri notaði Aviko Super Crunch)
  • ½ tsk. hvítlauksduft
  • ½ tsk. paprikuduft
  • 250 g brokkolini (fæst í Costco)
  • 60 ml smjör (við stofuhita)
  • 2 lítil eða 1 stórt hvítlauksrif
  • 2 msk. söxuð steinselja
  • 1 stk. sítróna
  • Salt eftir smekk

Aðferð:

  1. Pressið hvítlauksrif og rífið um 2 tsk. af sítrónuberki (varist að taka hvíta undirlagið með). Blandið saman hvítlauk, smjöri, saxaðri steinselju og sítrónuberki. Smakkið til með salti.
  2. Takið kjötið úr kæli a.m.k. 1 klst. fyrir eldun, en það mun hjálpa til við jafnari og betri eldun.
  3. Nuddið kjötið með olíu og saltið rausnarlega. Piprið eftir smekk.
  4. Setjið kartöflurnar í stóra skál, veltið upp úr olíu og salti og eldið þær svo eftir leiðbeiningum á umbúðum.
  5. Færið bakaðar kartöflurnar aftur í skálina og veltið upp úr hvítlauks- og paprikudufti. Smakkið til með salti ef þarf.
  6. Setjið vatn í pott ásamt svolitlu salti og náið upp suðu. Lækkið hitann svo það rétt kraumi í vatninu og sjóðið brokkolini í 3 mín.
  7. Hitið grill að 200°C og grillið steikurnar í 4-5 mín. á hvorri hlið upp í 54°C kjarnhita fyrir medium-rare eldun. Best er að nota kjöthitamæli til að tryggja nákvæma eldun. Leyfið kjötinu að hvíla í nokkrar mín. áður en skorið er í það.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert