Kaffihús sem er engu öðru líkt

Æðislega flott kaffihús þar sem allt er svarthvítt.
Æðislega flott kaffihús þar sem allt er svarthvítt. mbl.is/Caters News Agency

Þetta svarthvíta kaffihús er hannað í tvívíddarlist, þar sem þykkar svartar útlínur skreyta veggi, gólf og húsgögn og er hreint út sagt geggjað.

Á Ink Café í Qatar, lítur allt út fyrir að vera teiknað með svörtum blekpenna, þar sem stólar og borð eru með svörtum brúnum. Í stað mynda á veggjum eru teikningar og útlínur af ramma, en enginn rammi er þó á veggnum. Meira segja teppamynstur er teiknað á gólfið ásamt púðum á básunum sjálfum, en staðurinn er einna sinnar tegundar í Qatar. Kaffihúsið þykir ekki bara magnað ásjónu, því kaffið og þjónustan er einnig frábær.

mbl.is/Caters News Agency
mbl.is/Caters News Agency
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert