TikTok trendið sem við skiljum ekkert í

Ef ykkur vantar snjallar eða stórskrítnar hugmyndir þá er TikTok vettvangurinn. Við höfum rekist á margt skrítið þar en þetta er þó með því undarlegra sem við höfum séð.

Allyssa Marshall sýndi myndskeið á TikTok þar sem hún bætir jalapeno sneiðum út í rósavínið sem hún setti í kælibrúsa áður en hún fór á ströndina. Myndbandið hefur vakið verðskuldaða athygli en menn eru ekki á sammála um hvort þetta sé snargalið eða það snjallasta sem sést hefur lengi. Ef þið ákveðið að prófa megið þið endilega tagga okkur á Instagram og við munum deila því áfram.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert