Kjúklingalæri með krömdum kartöflum

Ljósmynd/Hildur Rut

„Hér kemur uppskrift að gómsætum ofnbökuðum kjúklingalærum með ferskum kryddjurtum, hvítlauk, sítrónu og chili. Kjúklingurinn er borinn fram með krömdum kartöflum, kaldri parmesan sósu og fersku salati. Þennan rétt hef ég oft og mörgum sinnum gert og hann klikkar aldrei. Mæli með að þið prófið ykkur áfram með kryddjurtirnar, þær mega vera færri en uppskriftin segir til um,“ segir Hildur Rut um þennan girnilega rétt sem verður eflaust í matinn á einhverjum heimilum í kvöld.

Ljósmynd/Hildur Rut

Kjúklingalæri með krömdum kartöflum

Kjúklingur

  • Úrbeinuð kjúklingalæri frá Rose Poultry
  • 2 msk ólífuolía
  • Safi úr ½ sítrónu
  • 3-4 hvítlauksrif, pressuð
  • 1 msk. ferskt oregano, smátt saxað
  • 2 msk. fersk steinselja, smátt söxuð
  • 2 msk. fersk basilika, smátt söxuð
  • Salt og pipar
  • 1 chili, skorið í sneiðar
  • Sítrónusneiðar eftir smekk

Kartöflur

  • 12-14 litlar kartöflur
  • 2-3 msk. smjör
  • 2-3 msk. ólífuolía
  • Krydd: Salt, pipar, laukduft og hvítlauksduft
  • 1 dl rifinn Parmigiano reggiano
  • Fersk steinselja

Köld parmesan sósa

  • 2 dl sýrður rjómi
  • 2 msk. Heinz majónes
  • Safi úr ½ sítrónu
  • Krydd: Salt, pipar, laukduft og hvítlauksduft
  • 1 dl rifinn Parmigiano reggiano

Aðferð

  1. Setjið kjúklinginn í eldfast mót og blandið saman við ólífuolíu, sítrónusafa, pressuð hvítlauksrif, oregano, steinselju, basiliku, salt og pipar. 
  2. Dreifið chili sneiðum yfir og bakið í ofni við 190°C í 25 mínútur. 
  3. Takið kjúklinginn úr ofninum og drefið sítrónusneiðum yfir. Haldið áfram að baka kjúklinginn í ofninum í 10-15 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fullbakaður.

Kartöflur

  1. Sjóðið kartöflur í 30 mínútur eða þar til þær eru orðnar mjúkar.
  2. Dreifið þeim á bökunarplötu þakta bökunapappír og hafið smá bil á milli þeirra.
  3. Kremjið þær létt með kartöflustappara, morteli eða gaffli. 
  4. Penslið þær með ólífuolíu, smjöri og kryddið með salti, pipar, laukdufti og hvítlauksdufti
  5. Bakið í ofni í 10-13 mínútur og dreifið rifnum parmesan osti og ferskri steinselju yfir.

Sósa

  1. Blandið öllum hráefnunum vel saman með skeið.
Ljósmynd/Hildur Rut
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert