Halda glæsilega sjávarréttahátíð í Vestmannaeyjum

Þau stórtíðindi berast úr Vestmannaeyjum að haldin verði sérleg matarhátíð 8.-10. september næstkomandi. Hátíðin hefur hlotið nafnið MATEY en þar munu veitingastaðir, fiskframleiðendur og þjónustuaðilar í sjávarsamfélaginu taka höndum saman til að leiða saman úrvals hráefni og framúrskarandi mateiðslu.

Veitingastaðir bæjarins verða þar í lykilhlutverki en Vestmannaeyjar voru tilnefndar til norrænu matarveðlaunanna Emblu árið 2021 sem besti mataráfangastaðurinn á Norðurlöndunum. Fjölbreytt flóra veitingastaða og gæði veitingastaðanna spiluðu þar lykilhlutverk en veitingasenan þar er með afbrigðum blómleg.

Veitingastaðirnir GOTT, Slippurinn, Einsi kaldi og Næs munu af þessu tilefni bjóða upp á margrétta sérseðla sem sem útfærðir verða af nokkrum af bestu matreiðslumönnum Norðurlanda sem munu mæta sem gestakokkar á hátíðina. Að auki verður boðið upp á sérrétti á Tanganum, Kránni, Pístusgerðinni, Canton og Brothers.

Fyrirtæki á svæðinu munu taka virkan þátt í hátíðinni á borð við Ísfélagið, VSV, Leo Seafood, Grím kokk, Marhólmi og Iðunn Seafood.

Matgæðingar ættu ekki að láta þennan viðburð framhjá sér fara enda ljóst að þarna verður úrvals matur úr besta hráefninu á boðstólnum alla helgina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert