Olíuflaskan sem þú vissir ekki að þú þyrftir að eignast

mbl.is/Amazon

Það er gefið mál að flest sem er í spreyformi er mun þægilegra í notkun – ekki satt? Þessi spreyflaska er án vafa það snjallasta sem við höfum séð lengi.

Við könnumst við að sulla allt of mikilli olíu á pönnuna, á grillið, í baksturinn eða út á salatið, þar sem olían rennur svo mjúklega úr flöskunni án þess að við biðjum um það. Þessi spreyflaska er að leysa þennan vanda og ótal fleiri, því hún hentar fyrir hvaða olíu sem er – sem og edik. Flaskan er úr gleri og rúmar 100 ml. Henni fylgir einnig lítil trekt til að auðvelda er þú hellir olíunni á milli. Þessi einstaka spreyflaska kostar um 1.400 krónur og fæst á Amazon HÉR – en þeir senda til Íslands fyrir áhugasama.

Spreyflaskan sem auðveldar svo margt í eldhúsinu.
Spreyflaskan sem auðveldar svo margt í eldhúsinu. mbl.is/Amazon
mbl.is/Amazon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert