Þvottatrixin sem þú þarft að kunna

Við eyðum tíma í þvottahúsinu, og þá er gott að …
Við eyðum tíma í þvottahúsinu, og þá er gott að kunna réttu handtökin á erfiða bletti. mbl.is/

Það fer ekkert á milli mála að við viljum allan þann fróðleik og heilaga sannleika er kemur að þvottaráðum. Því blettir og annar óþrifnaður er á bannlista í þvottahúsinu – ef svo má segja.

Erfiðir olíublettir
Til að losna við erfiða olíubletti eftir t.d. pestó eða annað – þá er best að hella uppþvottalögi yfir blettinn og matarsóda áður en flíkin fer í þvott. Og bletturinn skolast auðveldlega burt.

Blettir eftir farða
Hér er aðferð sem allar konur ættu að kunna, því farði festist svo auðveldlega, t.d. í hálskraganum á spjörunum. Til að losna auðveldlega við farða úr fötum er best að maka raksápu á blettinn og þurrka svo vel með rökum klút eða setja í þvottavél.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert