Eiginmaður eldhúsgyðjunnar dró fram gamla uppskrift

María Gomez
María Gomez

„Um daginn þegar ég kom heim úr flugi var Raggi maðurinn minn búinn að baka geggjaðar súkkulaðibitakökur. Hann hafði lumað á uppskriftinni í öll þau ár sem við höfum verið saman en hann fann hana í gamallri skissubók út í bílskúr,“ segir María Gomez á Paz.is um þessar dýrindis súkkulaðibitakökur sem eiginmaður hennar dró fram úr ofninum.

„Ef þið viljið fá einhverja hugmynd um hvernig þær eru þá myndi ég lýsa þeim eins og kökunum sem fást í Costco eða á Subway bara miklu betri. Ekki skemmir svo fyrir að þær eru súper dúper auðveldar að gera, ef hann gat gert þær þá getið þið það !! Nei segi bara svona en Raggi má eiga það að allt sem hann gerir er gott.“

Ljósmynd/María Gomez

Dásamlegar amerískar súkkulaðibitakökur með seigri og mjúkri miðju

  • 100 g sykur 
  • 165 g púðursykur 
  • 1 tsk. fínt borðsalt 
  • 115 g bráðið smjör 
  • 1 egg 
  • 1 tsk. vanilludropar 
  • 155 g hveiti 
  • 1/2 tsk. matarsódi 
  • 220 g dökkt eða ljóst súkkulaði ( ég notaði semi-sweet súkkulaðidropa sem fást í Costco en það má líka skera niður súkkulaði í grófa bita eða kaupa hvaða súkkulaðidropa sem er, jafnvel setja hvítt og dökkt súkkulaði 50/50)

Aðferð

  1. Þeytið saman í hrærivél sykur, salt og smjör þar til það verður kekkjalaust og þykkt 
  2. Bætið þá egginu saman við ásamt vanilludropum og þeytið þar til það verður þykkkt, létt og loftkennt 
  3. Setjið þá næst hveitið og matarsódann og hrærið saman með sleikju eða sleif en ekki í hrærivél og passið að hræra ekki of mikið því þá verða kökurnar ekki eins góðar, bara rétt svo að blanda saman á þessu stigi 
  4. Setjið að lokum súkkulaðið út í og hrærið aftur sem minnst með sleif eða sleikju. Kælið deigið í minnst 30 mínútur, því lengur sem þið kælið deigið því betri kökur en Raggi gerði þetta deig að kvöldi og geymdi í ísskáp yfir nótt......
  5. Hitið ofninn á 180 °C blástur og setjið bökunarpappír á plötu 
  6. Best er að móta svo kökurnar með smákökuskeið eða ísskeið (hér t.d fæst sniðug skeið en notið þá stærri skeiðina) 
  7. Raðið svo hverri kökukúlu úr skeiðinni með 10 cm á milli svo þær leki ekki saman og hafið eins og 5 cm frá endanum á plötunni svo þær leki ekki út af
  8. Bakið svo í 12-15 mínútur eða þar til kantarnir eru aðeins búnir að dökkna en eru ljósari í miðju, Raggi hafði þær í sléttar 13 mínútur. Ekki baka þær of mikið þá verða þær ekki mjúkar inn að miðju
  9. Athugið að þegar kökurnar fara í ofninn þá eru þær í kúluformi en leka svo niður og verða flatar við bakstur 

Punktar

Gott er að geyma kökurnar í zip it poka eða lofttæmdu boxi. Ég set þær stundum í frystir og tek svo út eina og eina og læt þiðna á borði í eins og 15 mínútur.

Ljósmynd/María Gomez
Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert