Guðdómlegar bollakökur með súkkulaði- og heslihnetukremi

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Hér eru á ferðinni undursamlegar bollakökur þar sem búið er að bæta Royal súkkulaðibúðing út í deigið til að gera kökurnar extra djúsí og góðar. Ég ákvað síðan að prófa að fara aðeins út af sporinu varðandi súkkulaðikremið og bæta súkkulaði- og heslihnetukremi saman við og útkoman varð alveg hreint stórkostleg,“ segir Berglind Hreiðars á Gotteri.is um þessar dásamlegu bollakökur.

Bollakökur með súkkulaði- og heslihnetukremi

18-20 stykki

Bollakökur uppskrift

  • 70 g smjör við stofuhita
  • 250 g sykur
  • 2 egg
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 230 ml nýmjólk
  • 150 g hveiti
  • 60 g bökunarkakó
  • 2 tsk. Royal lyftiduft
  • ½ tsk. matarsódi
  • ¼ tsk. salt
  • 1 súkkulaði Royal búðingur (duftið)
  • 150 g súkkulaðidropar (dökkir)

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 170°C og takið til ál-bollakökuform og setjið pappaform ofan í.
  2. Þeytið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst.
  3. Bætið eggjunum saman við ásamt vanilludropum, einu eggi í einu, skafið og þeytið á milli.
  4. Blandið öllum þurrefnunum saman í eina skal fyrir utan súkkulaðið og setjið út í eggjablönduna til skiptis við mjólkina.
  5. Skafið niður eftir þörfum og hrærið stutta stund.
  6. Blandið að lokum súkkulaðidropunum saman við með sleikju.
  7. Skiptið niður í bollakökuformin (fyllið um 2/3 af forminu) og bakið í um 20 mínútur.
  8. Kælið áður en þið smyrjið kreminu á.

Súkkulaði- og heslihnetukrem

  • 100 g smjör við stofuhita
  • 80 g súkkulaði- og heslihnetusmjör við stofuhita
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 30 g bökunarkakó
  • 100 ml rjómi
  • 300 g flórsykur

Aðferð:

  1. Blandið öllu saman í skál, þeytið og skafið niður eftir þörfum þar til létt súkkulaðikrem hefur myndast. Gott er að setja flórsykurinn saman við í nokkrum skömmtum.

  2. Smyrjið vænni matskeið af kremi á hverja bollaköku.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert