Tómatsúpan sem tryllir bragðlaukana

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Ef þú ert á hraðferð þegar kemur að kvöldmatnum en vilt engu að síður slá í gegn þá er þessi súpa fullkomin!“ segir Berglind Hreiðars á Gotteri.is um þessa tímamóta snilld sem elduð er í ofni.

„Það er einfalt að leika sér með pakkasúpur til að flýta fyrir eldamennskunni og þessi ofnbakaða súpa með brauðteningum er algjört lostæti.

Ofnbökuð tómatsúpa

Fyrir 4-6 manns

Tómatsúpa

  • ½ laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 1300 ml vatn
  • 400 ml rjómi
  • 2 pakkar TORO tómatsúpa (bréf)
  • Salt og pipar Cheyenne pipar
  • Brauðteningar (sjá uppskrift að neðan)
  • Rifinn ostur
  • Ferskt timian

Aðferð:

  1. Ólífuolía til steikingar
  2. Hitið ofninn í 200°C grill/blástur.
  3. Saxið laukinn smátt niður og steikið við meðalháan hita þar til hann mýkist, kryddið til með salti og pipar.
  4. Hellið þá vatni + rjóma í pottinn og hrærið súpubréfunum saman við, leyfið að malla stutta stund.
  5. Kryddið til eftir smekk.
  6. Setjið súpu í litlar skálar, setjið góða lúku af brauðteningum yfir og þá rifinn ost.
  7. Bakið í ofninum í nokkrar mínútur eða þar til osturinn fer að gyllast og stráið þá fersku timian yfir og njótið.

Brauðteningar

  • 1 x súrdeigs snittubrauð skorið í teninga
  • Ólífuolía
  • Flögusalt

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200°C grill/blástur.
  2. Dreifið úr brauðteningunum á bökunarplötu.
  3. „Drisslið“ smá ólífuolíu yfir og næst smá salti.
  4. Bakið/grillið í ofninum í nokkrar mínútur eða þar til teningarnir fara aðeins að gyllast.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert