Leyndarmálið á bak við fullkominn kaffibolla

Best geymdu kaffi leyndarmálin.
Best geymdu kaffi leyndarmálin. mbl.is/iStock

Hér koma öll bestu ráðin er varðar kaffi - þá bæði hollráð og leyndarmál, svo ekki sé minna sagt.

  • Ekki geyma kaffibaunirnar í frysti, láttu þær frekar í lofttæmt ílát. 
  • Búðu til þitt eigið sýróp, kannski með vanillu eða karamellubragði - það mun bæta kaffið til muna. 
  • Settu kanil út í kaffið til að fá tvist á bragðið. Eins er engifer eða kardimommur líka góðar út í baunirnar. 
  • Rjómi út á kaffið er æðislegur! Blandaðu smávegis af vanillu og jafnvel sykri út í, og rjóminn verður unaðslegur. 
  • Búðu til ísmola úr kaffi, þá áttu alltaf til kaffiklaka þegar þig þyrstir í ískaffi. Eins getur þú gert ísmola úr mjólk sem eru upplagðir út í kaffið. 
  • Helltu mjólk í glas með loki og hristu vel. Settu síðan glasið inn í örbylgjuofn í 30 sekúndur og þú færð hina fullkomnu froðumjólk út á kaffið. 
  • Til að bollinn haldi kaffinu þínu heitu og góðu, þá er ráð að setja sjóðandi heitt vatn í bollann og hella því síðan úr - þannig hefur þú hitað bollann sem tekur á móti heitu kaffinu. 
  • Síðast en ekki síst er nauðsynlegt að næla sér í flott ferðamál sem þú getur tekið með þér í vinnuna eða á ferðina. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert