Saumaklúbbsrétturinn sem slær alltaf í gegn

Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

„Þessar rjómaostafylltu brauðbollur slá ávallt í gegn í saumaklúbbum og veislum af öllum stærðum og gerðum. Þeim svipar til hvítlauksbrauðs, nema þær eru bara svo miklu meira, betra og skemmtilegra,“ segir Berglind Guðmundsdóttir á GRGS um þessar girnilegu bollur.

„Fljótlegar í gerð og einfalt að taka í sundur. Það er alveg ráðlegt að tvöfalda uppskriftina því þessar hverfa hratt.“

Ostafylltar brauðbollur

  • 6 stk. brauðbollur (fást frosnar í matvöruverslunum)
  • 2 dl rifinn Mozzarellaostur frá Gott í matinn
  • 200 g rjómaostur með graslauk og lauk frá MS
  • 100 g smjör
  • 2 tsk. Dijon sinnep
  • 2 tsk. ítalskt krydd
  • 1 tsk. sjávarsalt
  • 1 tsk. svartur pipar
  • vorlaukur til skrauts

Aðferð:

  1. Afþíðið brauðbollurnar og skerið 3-4 línur í brauðbollurnar langsum og þversum. Látið skurðinn ná neðarlega í bollurnar, en þó ekki alveg niður.
  2. Setjið rjómaost og mozzarella í skál og blandið vel saman.
  3. Látið blönduna í skurðinn á brauðbollunum.
  4. Bræðið smjörið og látið Dijon sinnep, ítalskt krydd, sjávarsalt og svartan pipar saman við.
  5. Dreypið smjörblöndunni yfir ostinn á brauðbollunum með skeið.
  6. Setjið á bökunarplötu og bakið við 180°C í um 15 mínútur eða þar til osturinn er bráðinn og brauðbollurnar eru farnar að fá gylltan lit.

Höfundur: Berglind Guðmundsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert