Alvöru sunnudagsmatur eins og hann gerist bestur

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Haustið fær mig alveg til að skipta um gír í eldhúsinu og elda eitthvað meira kósý og notalegt! Hér er á ferðinni einfaldur og æðislegur sunnudagsmatur. Grilluð nautalund, bakaðar kramdar kartöflur og ljúffeng rauðvínssósa með sveppum, njótið!“ segir Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is um þessa dýrindis máltíð sem ætti ekki að valda neinum vonbrigðum.

„Ég elska að stytta mér leið í sósugerð með pakkasósu, þegar útkoman verður dásamleg, líkt og í þessu tilfelli!“ bætir Berglind við og við tökum heils hugar undir það enda algjör snilld að vera með góðan grunn eins og hún notar.

Sunnudagsmatur

Fyrir um 4-6 manns

Grilluð nautalund uppskrift

  • Um 800 g nautalund
  • 150 ml sojasósa
  • Smá smjör
  • Svartur pipar
  1. Snyrtið lundina og marinerið hana í sojasósunni í um 30-45 mínútur.
  2. Grillið síðan á vel heitu grilli þar til óskuðum kjarnhita er náð, við tökum okkar af grillinu í um 52-55°C og leyfum að standa í um 10 mínútur áður en skorið er.
  3. Þegar lundin er að verða tilbúin má nudda hana aðeins með smjöri og síðan pipra hana eftir að hún er tekin af grillinu.

Rauðvínssósa uppskrift

  • 300 g kastaníusveppir
  • 40 g smjör
  • 2 hvítlauksrif
  • 150 ml rauðvín
  • 350 ml vatn
  • 2 bréf TORO rauðvínssósa (duftið)
  • 1 msk. fljótandi nautakraftur
  • 1 tsk. saxað ferskt timian
  • Salt, pipar, cayenne-pipar
  1. Skerið sveppina gróft niður og steikið upp úr smjöri við meðalháan hita.
  2. Rífið hvítlauksrifin saman við þegar sveppirnir fara aðeins að mýkjast og kryddið eftir smekk með salti og pipar.
  3. Þegar allur safi hefur gufað upp af sveppunum má hækka hitann, hella rauðvíninu saman við og leyfa því að sjóða stutta stund, lækka síðan hitann og leyfa því að sjóða niður.
  4. Bætið þá vatninu saman við og duftinu úr báðum sósupökkunum, náið aftur upp suðu og lækkið hitann síðan vel. Hrærið reglulega í sósunni og leyfið henni að malla.
  5. Bætið timiani við og kryddið til með nautakrafti, cayenne-pipar, salti og pipar.

Kramdar kartöflur

  • Um 900 g kartöflur (nýjar íslenskar ef þær eru til)
  • Ólífuolía
  • Salt, pipar, hvítlauksduft
  1. Hitið ofninn í 210°C.
  2. Sjóðið kartöflurnar fyrst, kælið þær aðeins og penslið ofnskúffu með ólífuolíu.
  3. Raðið kartöflunum í ofnskúffuna og kremjið þær með kartöflustappara/spaða.
  4. Penslið kartöflurnar næst með ólífuolíu og kryddið eftir smekk.
  5. Bakið í 20-25 mínútur eða þar til þær verða stökkar að utan.

Bakaður hvítlaukur

  • Heill hvítlaukur
  • Ólífuolía
  1. Flysjið allt laust hýði utan af hvítlauknum.
  2. Skerið neðan af honum um ½ cm til að opna vel fyrir alla geira.
  3. Setjið hvítlaukinn ofan á álpappírsbút. Dreypið svolítilli ólífuolíu yfir skurðflötinn. Lokið álpappírnum utan um hvítlaukinn og bakið hann við 210°C í um 40 mínútur.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert