Fimm mínútna uppskriftin sem toppar flest

Ljósmynd/Linda Ben

„Ef þig langar til að breyta til frá hefðbundna álegginu á brauðið þá mæli ég með að þú prófir þessa kjúklingabaunahræru, hún er alveg virkilega bragðgóð! Krydduð kjúklingabaunahræra er upplögð til fá sér í morgunmat eða hádegismat. Þetta er kjörin réttur til þess að “food preppa” en það er hægt að græja þennan rétt með miklum fyrirvara og hita svo upp þegar maður vill,“ segir Linda Ben um þessa dásamlegu uppskrift sem er eins og ferskur andvari á þessu annars grámyglaða hausti. Hún bætir við að auðvelt sé að gera uppskriftina vegan með því að skipta parmesan ostinum út fyrir næringarger.

„Það tekur ekki nema um það bil 5 mínútur að græja þessa próteikríku, hollu og súper góðu uppskrift.“

Krydduð kjúklingabaunahræra

  • 300 g niðursoðnar kjúklingabaunir í krukku frá Muna
  • 2 tsk. tahini frá Muna
  • 1 tsk. túrmerik frá Muna
  • 1 tsk. hvítlaukskrydd
  • 1 tsk. laukkrydd
  • 1/2 tsk. pipar
  • 1/4 tsk. salt
  • 1 tsk. paprikukrydd
  • 1 msk. parmesan ostur eða næringarger
  • 1 msk. steikingarolía frá Muna

Borið fram með

  • Súrdeigsbrauð
  • Klettasalat
  • Kirsuberjatómatar
  • Ólífu olía frá Muna

Aðferð:

  1. Setjið kjúklingabaunirnar í skál og stappið þær gróft með gaffli/kartöflustappara/annað.
  2. Bætið tahini út á skálina ásamt túrmeriki, hvítlaukskryddi, laukkryddi, pipar, salti, paprikukryddi og parmesan osti/næringargeri.
  3. Steikið upp úr 1 msk af steikingarolíu þar til öll blandan er orðin heit í gegn og osturinn bráðnaður.
  4. Ristið súrdeigsbrauðsneiðar og setjið kjúklingabaunahræruna ofan á ásamt klettasalati, kirsuberjatómutum og ólífu olíu.
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert