Andasalatið sem fullkomnar helgina

Andasalat upp á tíu!
Andasalat upp á tíu! mbl.is/Jamie Oliver

Hér er réttur sem mun fullkomna helgina - þegar við viljum gera vel við okkur. Andasalat með appelsínubitum og hnetum sem æra bragðlaukana. 

Það er enginn annar en meistari Jamie Oliver sem á heiðurinn að þessari snilld sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Andasalat upp á tíu

  • 2x 150 g andabringur
  • 1 baguette brauð
  • 15 g ósaltaðar valhnetur
  • 3 appelsínur eða blóðappelsínur
  • 30 g vatnakarsi

Aðferð:

  1. Nuddið andabringurnar með sjávarsalti og svörtum pipar. Hitið pönnu á meðalhita og hitið bringurnar með skinnið á pönnunni. Eldið í sex mínútur þar til gylltar á lit, snúið þá bringunum við og eldið áfram í fimm mínútur. Látið hvíla til hliðar á diski. 
  2. Skerið baguette brauðið í tíu þunnar sneiðar og ristið (getið geymt restina af brauðinu í afganga þar til daginn eftir).
  3. Ristið hneturnar á pönnunni – og ekki þrífa hana á milli, leyfið fitunni af kjötinu að vera á pönnunni. 
  4. Skerið appelsínurnar niður í bita. 
  5. Skerið andabringurnar fínlega niður og leggið á brauðið og leggið appelsínubita ofan á. Stráið vatnakarsa og hnetunum yfir og njóið af bestu lyst. 

Uppskrift: Jamie Oliver

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert