Einn vinsælasti veitingastaður landsins, Fiskmarkaðurinn, fagnar 15 ára afmæli sínu um þessar mundir. Af því tilefni verður blásið til heljarinnar veislu fram yfir helgi þar sem boðið verður upp á sérstakan afmælisseðli þar sem finna má nokkra af vinsælustu réttum staðarins í gegnum árin.
Að sögn Hrefnu Sætran, eiganda staðarins verður mikil gleði alla helgina enda eru þetta stór tímamót sem ber að fagna.
„Við byrjuðum á því að setja saman afmælismatseðil með nokkrum af vinsælustu réttum Fiskmarkaðsins frá upphafi. Þessir réttir eru það vinsælir að þegar við tókum til dæmis einn af þeim af matseðlinum á sínum tíma þá var mikið kvartað og spurt hvar hann væri svo við smelltum honum strax aftur inn. Þetta eru réttir sem flestir sem hafa komið á Fiskmarkaðinn ættu að kannast við og þeir sem hafa ekki komið munu elska hann. Ég lofa! Partýið verður frá miðvikudegi til og með laugardags og seðillinn í boði þá. Miðvikudag og fimmtudag verður kokteila pop up á Uppi sem er barinn okkar á efri hæð Fiskmarkaðsins með Andra Viceman sem er vel þekktur í kokteila heiminum. Hann mun gera sex mismunandi Tanqueray kokteila. Svo verða mismunandi plötusnúðar alla dagana. Mama Gunz, Dj B-Ruff og Glókollur munu svo vera plötusnúðar í partýinu. Við mælum með að fólk sem sagt byrji kvöldið á Fiskmarkaðnum í matseðlinum, færi sig svo Upp á barinn og fái sér afmæliskokteil og þar verður afmælispartý.“
Hrefna segir þetta þýðingarmikil tímamót fyrir hana enda eigi staðurinn stóran sess í hjarta hennar.
„Hann er elsta barnið mitt. Ég er mjög stolt af öllu samstarfsfólkinu á Fiskmarkaðnum og gaman að líta til baka á allt sem við höfum gert í gegnum tíðina. Veitingastaðir eru svo mikið fólkið sem vinnur þar og við erum með frábært teym. Þeir Styrmir Bjarki yfirþjónn á Fiskmarkaðnum og Kirill Ter-Martirosov yfirkokkur á Fiskmarkaðnum eru frábærir fagmenn og nú síðast bættist í hópinn hún Marta Rún markaðsstýran okkar og ég hlakka alltaf til að mæta í vinnuna og brasa eitthvað skemmtilegt með þeim. Svo eru Nick, Stefán, Þór, Tómas, Birta og Jóhanna frábær líka og við erum bara gott lið. Höldum áfram á þessari braut og gerum líka nýja hluti til að vaxa áfram.“
Hvað hefur helst breyst á þessum 15 árum?
„Það hefur mjög margt breyst en aðal áherslan er alltaf hjá okkur að fólk verði fyrir upplifnu þegar það mæti til okkar. Fái framúrskarandi mat, frábæra þjónustu og eigi kvöldstund sem lifir áfram í minningunni. Við höfum líka alltaf passað að hafa Fiskmarkaðinn í takt við það sem er að gerast og þótt ég segi sjálf frá þá höfum við líka verið trend setterar í bransanum svo aldur er ekkert nema tala enda eigum við frábæran fastakúnnahóp og alltaf nýjir aðilar að uppgötva Fiskmarkaðinn.“
Hvaða ráð myndir þú gefa sjálfri þér ef þú gætir farið 15 ár aftur í tímann?
„Ég mundi segja mér að fagna meira áföngum og markmiðum sem ég ætla klárlega að fara gera meira af núna. Maður gerir það alltof sjaldan. Annars er ég bara nokkuð sátt við það sem ég hef verið að gera hvort sem það hefur gengið upp eða ekki þá hef ég lært heilan helling í hvert sinn.“
Hrefna segir aðspurð að því hvort eitthvað sérstakt standi upp úr á þessum 15 árum að það sé ansi margt sem hafi litað rekstrarumhverfi veitingastaða.
„Fiskmarkaðurinn hefur farið í gegnum nokkrar bylgjur, kreppuna, fall flugfélags og núna síðast auðvitað covid og þá lærir maður helling í hvert sinn. Mér finnst í raun og veru standa upp úr að hafa komist í gegnum þetta allt og vera með sterk og skýr framtíðar markmið. Þetta hefði að sjálfsögðu aldrei verið hægt í 15 ár án alla frábæru kúnnana okkar.“
Hver er uppáhalds rétturinn þinn?
„Þetta er klárlega erfiðasta spurningin í þessu viðtali haha. Ég get ekki gert upp á milli en afmælisseðillinn er klárlega í uppáhaldi núna þar sem þetta er samansafn af vinsælustu réttum fiskmarkaðsins síðastliðin 15 ár ástamt kynning á einum glænýjum rétti. Mér finnst allt gott á matseðlinum á Fiskmarkaðnum. Ef mér þætti það ekki þá myndum við breyta því.“