Taka vel á móti gestum alla helgina

Sýningin Íslenskur landbúnaður 2022 verður haldin í Laugardalshöll dagana 14.-16. október en markmið hennar er að kynna íslenskan landbúnað fyrir almenningi og á sama tíma að leiða saman fyrirtæki og einstaklinga sem starfa í atvinnugreininni. Meðal fyrirtækja sem verða á sýningunni er að sögn forsvarsmanna fyrirtækisins hefur undirbúningur staðið yfir lengi og mikil tilhlökkun þar á bæ.

Verður gestum boðið upp á úrval íslenskra osta, skyrsmakk og auk þess sem nýjar vörur verða kynntar. Á meðal nýjunga er nýtt KEA skyr sem verður aðeins á markaði í nokkrar vikur og óhætt að segja að hönnun umbúðanna sé ólík öllu sem íslenskir skyraðdáendur hafa séð áður.

Nokkur ár eru síðan samskonar sýning var haldin og meðal þess sem gestum sýningarinnar verður boðið upp á er matur úr íslenskri sveit, þar sem fjölmörg fyrirtæki kynna hreinleika íslenskrar matvælaframleiðslu; tækjasýning úti og inni á ýmsum tækjum, tólum og vörum sem notuð eru við landbúnað og þá er afar áhugaverð fyrirlestradagskrá um íslenskan landbúnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert