Rauðu boxin bleik í október

Rauðu „Take away“ boxin á Wok On eru bleik nú í október og allan þennan mánuð munu 50 krónur af hverjum seldum rétti renna til Krabbameinsfélagsins.

Eins og allir vita er október bleikur mánuður í tilefni af árlegu átaksverkefni Krabbameinsfélagsins sem nefnist Bleika slaufan og er barátta gegn krabbameinum hjá konum.

Wok On vill sýna verkefninu stuðning og því hafa öll „Take away“ boxin, sem alla jafna eru rauð, verið sett í bleikan búning. Að auki ætlar Wok On að styrkja átakið um 50 kr af hverjum seldum rétti allan mánuðinn.

Wok On ætlar svo að gera gott betur, því þeir sem setja mynd af bleiku boxunum í story hjá sér á Instagram og merkja með @wokonice fara í sérstakan pott. Eftir að októberátakinu lýkur verður dregin út heppinn aðili sem fær klippikort á Wok On og Bleika slaufan verður styrkt um 100.000 krónur í nafni hins heppna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert