Kartöflumeðlæti sem ruglar í þér

Ljúffengar rösti-kartöflur með grænmeti að hætti Jamie Oliver.
Ljúffengar rösti-kartöflur með grænmeti að hætti Jamie Oliver. mbl.is/Jamie Oliver

Hér bjóðum við upp á rösti kartöflubakka með grænmeti að hætti Jamie Oliver. Þetta kartöflumeðlæti ruglar alveg í bragðlaukunum þínum - svo gott er það.

Kartöflumeðlæti sem ruglar í þér

  • 600 g kartöflur
  • 3 stórar gulrætur
  • 1/2 tsk. Dijon-sinnep
  • 1/2 sítróna
  • ólífuolía
  • 100 g frosnar grænar baunir
  • 100 g spínat
  • 4 stór egg
  • 50 g fetaostur

Aðferð:

  1. Skrælið kartöflurnar og gulræturnar og rífið þær síðan gróflega í matvinnsluvél. Stráið klípu af sjávarsalti yfir, blandið saman og látið standa í fimm mínútur. 
  2. Blandið saman í skál sinnepi, sítrónusafa og skvettu af ólífuolíu - ásamt salti og svörtum pipar. Setjið til hliðar.
  3. Dreypið ólífuolíu í stóra skál og bætið smávegis pipar út í. Kreistið kartöflublönduna þannig að safinn renni af henni og setjið út í skálina. Dreifið blöndunni á bökunarplötu og bakið í 35 mínútur, eða þar til blandan er gyllt að ofan og stökk á brúnum. 
  4. Sjóðið baunirnar í smástund í saltvatni á pönnu. Takið baunirnar af pönnunni og setjið saman við sósuna og leggið spínatið yfir. Notið pönnuna til að steikja eggin eftir smekk. 
  5. Setjið rösti-kartöflurnar í fat og dreifið eggjunum og salatinu ofan á. Myljið síðan fetaostinn yfir og berið fram. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert