„Þessi pizza er í allra mesta uppáhaldi hjá mér“

Ljósmynd/Gígja S. Guðjónsdóttir

„Þessi pizza er í allra mesta uppáhaldi hjá mér og allir sem hafa smakkað þessa hjá okkur gera hana aftur seinna. Algjör veisla fyrir bragðlaukana. Innihaldið fer auðvitað eftir því hversu margar pizzur þið ætlið að gera þannig ég gef ykkur uppskrift af eins og fyrir 1 pizzu,“ segir Gígja S. Guðjónsdóttir, matarbloggari um þessa pístu sem ætti að hitta í mark enda bragðsamsetningin einstaklega vönduð og spennandi.

Pizza með sveppum, Feyki og truffluolíu

Pizza

  • 1 stk. pizzadeig, heimagert eða aðkeypt (ekki verra ef það er súrdeigs)
  • 1 msk. hvítlauksolía
  • 1⁄2 bakki sveppir
  • 2 msk. smjör
  • 1 stk. Goðdala Feykir (einn ostur dugir á um 3 pizzur)
  • truffluolía
  • hvítlaukssalt
  • gróft sjávarsalt
  • Hvítlauksbrauð
  • 1 stk. pizzadeig, heimagert eða aðkeypt (ekki verra ef það er súrdeigs)
  • Goðdala Feykir
  • hvítlauksolía
  • sjávarsalt
  • pizzasósa

Pizza

  1. Sveppirnir eru skornir og steiktir á pönnu með smjöri og hvítlaukssalti. Þegar þeir eru tilbúnir er smá truffluolíu bætt út á pönnuna.
  2. Pizzadeigið er flatt út og á botninn fer hvítlauksolía, næst rifinn Feykir ostur eftir smekk og sveppir.
  3. Eldunartími pizzunnar fer eftir því hvernig þið eldið hana en hún er auðvitað best grilluð eða í pizzaofni. Ef sú aðferð er notuð þá eru þetta um 2 mínútur og fylgist þá vel með þar til pizzan er komin með fínan lit.
  4. Ef pizzan er bökuð í ofni er best að hafa hitann á 220 gráður blástur og baka pizzuna í 10-12 mínútur eða þar til kantarnir hafa fengið góðan lit. Gott ráð til botninn verði betri er að setja pizzuna á heita ofnplötu.
  5. Þegar pizzan er tilbúin þá er sjávarsalti og truffluolíu bætt ofan á um leið og hún kemur úr ofninum.

Hvítlauksbrauð

  1. Deigið er flatt út og hvítlauksolíu og rifnum Feyki osti er dreift yfir helminginn af deiginu og því svo lokað eins og hálfmána og kantarnir pressaðir niður.
  2. Hvítlauksbrauðið er hitað með sömu aðferð og pizzan.
  3. Um leið og brauðið kemur út er það penslað með hvítlauksolíu, sjávarsalti stráð yfir og brauðið og skorið í stangir.
  4. Gott að dýfa brauðstöngunum í pizzasósu.
Ljósmynd/Gígja S. Guðjónsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert