Hafa opnað eitt glæsilegasta kjötborð landsins

Við höfum beðiði eftir því í talsverðan tíma – eða allt frá því að þau miklu tíðindi bárust – að Sælkerabúðin væri að opna kjötborð í Hagkaup í Kringlunni og Garðabæ.

Sælkerabúðin hefur notið fádæma vinsælda frá opnun en það eru matreisðlumennirnir Hinrik Lárus­son og Vikt­or Örn Andrés­son sem standa að henni.

Nú er formlega komið að opnun og af því tilefni verður mikið um dýrðir í verslunum Hagkaups í Kringlunni og Garðabæ.

Að sögn Evu Laufeyjar Hermannsdóttur, markaðs- og upplifunarstjóra Hagkaups, verður boðið upp á glæsileg tilboð og smakk í boði fyrir viðskiptavini. Það er því ljóst að gúrmei naggar eiga gott í vændum og ljóst að sælkerasteikur frá Viktori og Hinrik verða á einhverjum matarborðum um helgina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert