KEA skyr eins og þú hefur aldrei séð það áður

Nú er komin á markað ný og spennandi sérútgáfa af KEA skyri sem verður aðeins fáanleg í takmarkaðan tíma. Nýtt KEA skyr með banana- og súkkulaðibragði er líkt og aðrar KEA skyr bragðtegundir próteinríkt og einstaklega bragðgott.

„Sérútgáfurnar okkar hafa vakið mikla athygli síðustu misseri enda höfum við verið óhrædd við að setja á markað nýjar og spennandi bragðtegundir. Að þessu sinni leyfðum við okkur jafnframt að fara langt út fyrir boxið í hönnun á umbúðunum og getum fullyrt að íslenskir skyraðdáendur hafi aldrei séð neitt þessu líkt,“ segir Halldóra Arnardóttir, markaðsstjóri ferskvara hjá Mjólkursamsölunni. Fyrsta KEA skyr sérútgáfan með saltkaramellubragði og eldgosi á umbúðunum vakti mikla lukku og fór það svo að hún var sett í hefðbundnar KEA skyr umbúðir og á nú fastan sess í vöruframboði KEA skyrs.

Nýja sérútgáfan með banana og súkkulaðibragði verður án plastloks og pappaskeiðar og er það liður í þeirri stefnu MS að draga úr plastnotkun en rannsóknir sýna að Íslendingar eru að venjast því að nota fjölnota skeiðar eftir að plastskeiðarnar voru bannaðar. „Hvert skref í þessa átt er gott skref og við munum halda áfram þeirri vinnu að draga úr plasti í umbúðum okkar eins og kostur er án þess þó að það bitni á geymsluþoli varanna en skyrið er viðkvæm vara og plastið best til þess fallið að halda viðhalda gæðum og geymsluþoli þess,“ bætir Halldóra við að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert