Nýtt Bugles á markað

Nýtt Bugles er væntanlegt.
Nýtt Bugles er væntanlegt. mbl.is/Bugles

Bugles er glæpsamlega vanmetið þegar kemur að snakk-leikunum, því þessir stökku bragðgóðu sívalningar eru svo góðir og nú í nýrri bragðtegund. 

Það er kominn tími til að Bugles fái smá athygli, enda eina snakkið á markaði sem gefur þér snargöldrótta fingur og einstaka snakkupplifun. Í nýju samstarfi við Hidden Valley Ranch er komið glænýtt bragð á markað sem byggir á ástsælu dressingunni og ídýfunni. En þessi spennandi nýjung verður væntanleg á markað á komandi mánuðum. Það gleður! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert