Hrásteypan fær að njóta sín í eldhúsinu

Svart og smart! Sjáið hvað hrásteypan nýtur sín vel í …
Svart og smart! Sjáið hvað hrásteypan nýtur sín vel í þessu eldhúsi. mbl.is/FILD

Hér sjáum við einstaklega smart eldhús sem tikkar í mörg box - en hrásteypan í húsinu fær að njóta sín í rýminu og kemur virkilega vel út. 

Eldhúsið er í grunninn svart, þá bæði skápar og skúffur sem og borðplata og hillur. Hér fær steypan að njóta sín á veggjum og á flotuðu gólfinu - en andspænis innréttingunni er eldhúsborð og bólstraður bekkur fyrir húsráðendur að sitja á.

Blöndunartækin eru krómuð og tækin eru svört sem falla vel inn í háan skápavegg úr viði. Hér spilar viðurinn stórt hlutverk í rýminu og gefur heildarútlitinu þennan hlýja sjarma sem eldhúsið býr yfir. 

mbl.is/FILD
mbl.is/FILD
mbl.is/FILD
mbl.is/FILD
mbl.is/FILD
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert